Vonast til að fyrrum samherji sinn slái út Palicka
Julien Kammerer / DPPI via AFP

Markvörðurinn Dejan Milosavljev telur að Lasse Ludwig hafi alla burði til að verða aðalmarkvörður hjá Füchse Berlin þegar Andreas Palicka gengur til liðs við félagið á næsta tímabili. Dejan Milosavljev sem hefur verið aðalmarkvörður Berlínar liðsins undanfarin tímabil yfirgefur félagið í sumar.

Gengur hann í raðir Kielce í Póllandi og opnar þar möguleika fyrir Lasse Ludwig sem berst um markmannstöðuna á næsta tímabili við Svíann, Andreas Palicka sem gengur í raðir félagsins í sumar.

Í viðtali við Handball-World segir Milosavljev að hann sjái mikla möguleika í þýska markverðinum.

„Það eru tvær leiðir fyrir Lasse. Hann getur orðið fyrsti kostur og jafnvel staðið sig betur en ég. Eða hann mun næstu tvö árin berjast um stöðuna sem aðalmarkvörður og styðja við þann sem fær hlutverkið,“ sagði Milosavljev.

Hinn þrítugi Serbi leynir því ekki hvað hann vonast til að gerist hjá fyrrverandi liðsfélaga sínum.

„Ég vona að hann verði fyrsti kostur því hann hefur gæðin til þess. Ég vona að Lasse sé einnig andlega tilbúinn til að takast á við það hlutverk.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top