Framhaldið óljóst hjá Birki Ben
J.L.Long

Eftir eitt tímabil í Hafnarfirðinum með FH er ljóst að Birkir Benediktsson leikur ekki áfram með félaginu en hann gerði eins árs samning við FH síðasta sumar eftir eins árs dvöl hjá Wakunaga í Japan.

Birkir Benediktsson hafði fyrir veru sína hjá Wakunaga í Japan leikið allan sinn feril hjá uppeldisfélagi sínu Aftureldingu.

Birkir skoraði 84 mörk fyrir FH í Olís-deildinni og úrslitakeppninni en liðið endaði í 2.sæti deildarinnar og tapaði í oddaleik úrslitaeinvígisins gegn Val. Birkir sagði í samtali við Handkastið að það væri ekki komið alveg á hreint hvað tæki við hjá sér. Hann var ekki tilbúinn að segjast vera búinn að leggja skóna á hilluna og væri að skoða sín mál.

Birkir sem varð þrítugur í síðasta mánuði var fyrr á þessu ári orðaður við HK og þá hefur hann einnig verið orðaður við nýliða Víkings.

Birkir lék á sínum yngri árum með yngri landsliðum Íslands og var á sínum tíma ein öflugasta skytta landsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top