Kiel þurfti að greiða háa upphæð fyrir Börge Lund
Elverum

Þýska stórliðið THW Kiel hefur þurft að greiða háa upphæð til norska félagsins Elverum fyrir að fá Börge Lund til starfa sem nýjan aðalþjálfara liðsins.

Lund var í vikunni kynntur sem arftaki Filip Jicha, sem var sagt upp störfum eftir vonbrigðatímabil hjá Kiel. Undir stjórn Tékkans missti félagið af sæti í Meistaradeild Evrópu þriðja árið í röð og verður auk þess ekki í Evrópudeildinni á komandi leiktíð.

Börge Lund ráðinn þjálfari Kiel

Samkvæmt norsku sjónvarpsstöðinni TV 2 fékk Elverum milljóna upphæð í norskum krónum fyrir að leysa Lund undan samningi sínum og hleypa honum til Þýskalands.

Ekki hefur verið greint frá nákvæmri upphæð, en ljóst er að Kiel þurfti að greiða verulegar bætur til að tryggja sér þjónustu Norðmannsins.

Lund, sem er 47 ára gamall, þekkir vel til hjá Kiel eftir að hafa leikið með félaginu á árunum 2007 til 2010. Á þeim tíma vann hann meðal annars þýska meistaratitla og Meistaradeild Evrópu með liðinu.

Nú snýr hann aftur til félagsins, að þessu sinni sem aðalþjálfari, með það verkefni að koma Kiel aftur í fremstu röð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top