Tólf félagaskipti síðasta sumars sem stóðust ekki væntingar
Ruben De La Rosa / AFP

Handball Planet hefur tekið saman lista yfir tólf félagaskipti síðasta sumar sem stóðust ekki væntingar. Enginn Íslendingur er á listanum.

Sum lið stóðu ekki undir væntingum á tímabilinu og ollu stuðningsmönnum sínum vonbrigðum. Sumir leikmenn náðu ekki að sýna sitt rétta andlit hjá nýjum félögum, á meðan aðrir urðu fyrir óláni að meiðast og spila lítið.

Öll þau tólf félagaskipti sem Handball Planet valdi sem misheppnuð félagaskipti dreifast á tólf félög.

Leikmennirnir sem nefndir eru á listanum:

  1. Jim Gottfridsson - frá SG Flensburg-Handewitt til Pick Szeged
  2. Torbjørn Bergerud - frá Kolstad til Wisła Płock
  3. Hampus Wanne - frá FC Barcelona til HØJ Elite
  4. Miguel Martins - frá Álaborg til Dinamo Búkarest
  5. Gonzalo Pérez de Vargas - frá FC Barcelona til THW Kiel
  6. Andreas Palicka - frá PSG Handball til Kolstad
  7. Aitor Ariño - frá FC Barcelona til Füchse Berlin
  8. Sebastian Barthold - frá Álaborg til SC Magdeburg
  9. Seif El Deera - frá Limoges til FC Barcelona
  10. Uladzislau Kulesh - frá TSV Hannover-Burgdorf til MT Melsungen
  11. Lukas Sandell - frá One Veszprém HC til Rhein-Neckar Löwen
  12. Kent Robin Tønnesen - frá PSG Handball til SG Flensburg-Handewitt

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top