Norska handknattleikssambandið hefur kveðið upp úrskurð í máli hins 18 ára gamla Ciljan Sagosen yngri bróðir stórstjörnunnar, Sander Sagosen. Niðurstaðan er sú að hann verður áfram samningsbundinn sínu félagi, Bergen Håndball og fær því ekki að skipta um félag eins og hann vonaðist eftir. Bergen Håndball greinir frá því að norska handknattleikssambandið hafi staðfest að samningur leikmannsins sé enn í fullu gildi og að hann sé áfram hluti af leikmannahópi félagsins. „Við erum afar ánægð með að niðurstaðan staðfesti að Ciljan sé áfram leikmaður Bergen Håndball samkvæmt samningi sínum. Nú horfum við fram á veginn og hlökkum til undirbúnings og nýs tímabils með öflugum leikmannahópi,“ segir í tilkynningu frá félaginu. Ciljan Sagosen lék fyrr á þessu ári sinn fyrsta landsleik fyrir norska landsliðið og er talinn vera gríðarlegt efni og einn efnilegasti leikmaður Noregs. Ástæður deilunnar koma ekki fram í tilkynningu félagsins en samkvæmt TV 2 í Noregi vildi Ciljan Sagosen yfirgefa félagið vegna óánægju. TV 2 hefur áður greint frá því að hann hafi ætlað að nýta ákvæði í samningi sínum til að losna undan samningnum og að Charlottenlund hafi verið líklegur næsti áfangastaður hans. Þá hefur einnig verið greint frá því að danska félagið Bjerringbro-Silkeborg hafi sýnt þessum efnilega leikmanni áhuga. Með úrskurði norska handknattleikssambandsins liggur hins vegar fyrir að Ciljan Sagosen verður áfram leikmaður Bergen Håndball nema annað komi upp á daginn og hann verður keyptur undan samningi sínum við félagið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.