Bergerud sagður á leið til Fredericia
Bo Amstrup / AFP

Norski landsliðsmarkvörðurinn Torbjørn Bergerud er sagður á leið til danska félagsins Fredericia HK frá pólska stórliðinu Wisła Płock og það strax í sumar.

Samkvæmt heimildum TV 2 Sport í Danmörku hefur leikmaðurinn nú þegar skrifað undir samning við danska félagið en enn á eftir að opinbera tíðindin.

Fredericia hefur verið í leit að reynslumiklum markverði eftir að Sebastian Frandsen gekk til liðs við Bjerringbro-Silkeborg eftir síðasta tímabil. Frandsen var lykilmaður hjá liðinu á síðustu leiktíð.

Hinn 31 árs gamli Norðmaður býr yfir mikilli reynslu bæði með félagsliðum og með norska landsliðinu. Hann hefur verið fastamaður í norska landsliðinu um árabil og unnið til tveggja silfurverðlauna á heimsmeistaramótum og bronsverðlauna á Evrópumóti.

Bergerud þekkir dönsku úrvalsdeildina afar vel. Hann lék með TTH Holstebro áður en hann gekk til liðs við GOG, þar sem hann varð danskur meistari árið 2022. Eftir eitt tímabil hjá GOG hélt hann til norska félagsins Kolstad og síðan áfram til þýska stórliðsins Flensburg-Handewitt áður en hann gekk til liðs við Wisła Płock í Póllandi. Þar lék hann eitt tímabil en hann virðist nú vera á leið aftur til Danmerkur.

Það vekur nokkra athygli að Bergerud skuli yfirgefa Wisła Płock á þessum tímapunkti, enda er félagið meðal sterkustu liða Póllands og baráttunni árlega í Meistaradeild Evrópu. Bergerud myndaði markvarðarpar með Mirko Alilovic hjá Wisla Plock á síðustu leiktíð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top