Nahi kynntur hjá PSG
PSG

Franski landsliðsmaðurinn Dylan Nahi snýr aftur til uppeldisfélags síns, Paris Saint-Germain sumarið 2027 eftir að hafa skrifað undir samning við franska meistaraliðið til ársins 2031.

Nahi er nú samningsbundinn pólska stórliðinu Kielce til ársins 2028 en nýtti sér ákvæði í samningi sínum sem gerði honum kleift að yfirgefa félagið ári fyrr. Hann mun því klæðast PSG-treyjunni á ný frá og með tímabilinu 2027/28.

Vinstri hornamaðurinn er uppalinn hjá PSG en yfirgaf félagið árið 2021 þegar hann gekk til liðs við Kielce. Á síðustu árum hefur hann fest sig í sessi sem einn fremsti hornamaður Evrópu og verið lykilmaður bæði hjá Kielce og franska landsliðinu.

Nahi leyndi því ekki að það væri sérstakt að snúa aftur til félagsins þar sem ferill hans hófst.

„Ég er virkilega stoltur að hafa skrifað undir. Ég er mjög ánægður með að vera kominn aftur heim. Þegar ég fór var ég bara strákur. Nú kem ég til baka sem fullmótaður leikmaður og það var eitt af markmiðum mínum. Mig langaði alltaf að spila aftur í þessari treyju. Ég er virkilega heppinn að hafa fengið tækifærið til að snúa aftur,“ sagði Nahi í viðtali við PSG TV.

Með endurkomu Nahi fær PSG einn af sterkustu vinstri hornamönnum Evrópu aftur í sínar raðir og heldur áfram að byggja upp lið sem ætlar sér að berjast um stærstu titlana á komandi árum.

Á dögunum var tilkynnt að þýski landsliðsmaðurinn, Renars Uscins gangi í raðir PSG næsta sumar frá Hannover-Burgdorf og á sama tíma tekur Roberto Parrondo þjálfari MT Melsungen við liðinu af Stefan Madsen.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top