Bandaríska hjólastólahandboltalandsliðið hefur fengið stærsta styrk í sögu verkefnisins eftir að Lewis Howes, áhrifavaldur og forseti LA Handball Club, ákvað að leggja liðinu til 50.000 bandaríkjadali. Styrkurinn kemur frá verkefni Howes, School of Greatness, í samstarfi við LA Handball Club og verður nýttur til að standa straum af ferðakostnaði, æfingum og keppnisþátttöku landsliðsins á tveimur alþjóðlegum mótum á þessu ári. Fyrra verkefnið er Euro Hand 4 All 2026, sem fram fer í Lyon í Frakklandi dagana 1.–5. júlí. Þá mun liðið einnig taka þátt á fjórða heimsmeistaramóti landsliða í hjólastólahandbolta sem haldið verður í Granollers á Spáni dagana 14.–21. september. „Þetta er meira en bara styrkur – þetta er yfirlýsing,“ sagði Howes. „Þessir íþróttamenn sýna það besta sem Bandaríkin hafa upp á að bjóða og þeir eiga skilið allan þann stuðning og þau tækifæri sem við getum veitt þeim.“ Howes, sem sjálfur leikur með bandaríska handknattleikslandsliðinu, á persónuleg tengsl við verkefnið. Landsliðsþjálfarinn, Dr. Ford Dyke, er bæði gamall vinur hans og fyrrverandi liðsfélagi úr landsliðinu. „Ford hefur byggt upp eitthvað sérstakt hér. Markmið School of Greatness er að hafa jákvæð áhrif á líf fólks og þetta er ein beinasta leiðin til þess – að koma stuðningnum beint til þeirra sem eiga hann skilið,“ sagði Howes. Ford Dyke segir styrkinn marka tímamót fyrir verkefnið. „Markmið okkar er einfalt: að gera bandaríska hjólastólahandboltalandsliðið að farsælasta verkefni sinnar tegundar, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi. Stuðningurinn frá Lewis, School of Greatness og LA Handball Club opnar alveg ný tækifæri fyrir leikmennina okkar. Hann sendir jafnframt skýr skilaboð um að Bandaríkin ætli sér að taka þessa íþrótt alvarlega.“ Howes segir styrkinn jafnframt vera upphafið að lengra samstarfi, ekki einskiptisverkefni. Með Ólympíuleikana í Los Angeles árið 2028 í sjónmáli vill hann nýta þann mikla áhuga sem skapast mun í kringum leikana til að vekja meiri athygli á handbolta og segja sögur leikmannanna. „Við viljum nýta alla þá miðla sem við höfum til að segja þessar sögur. Leikmennirnir í þessu liði eru í heimsklassa og um leið einstakar manneskjur. Að styðja þá núna, þegar augu heimsins beinast að Los Angeles, er nákvæmlega sú hugsjón sem School of Greatness var stofnað fyrir.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.