Hver fyllir skarð Lasse Andersson í Berlín?
Ronny HARTMANN / AFP

Þýska félagið Füchse Berlin stendur frammi fyrir stóru verkefni eftir að danski landsliðsmaðurinn Lasse Andersson yfirgaf félagið og samdi við HØJ Elite.

Í grein sem birtist á Handball-World á dögunum var bent á það að félagið. hafi ekki enn fundið utanaðkomandi eftirmann fyrir Andersson fyrir komandi tímabil en félagið reyndi hvað það gat til að fá danska landsliðsmanninn, Simon Pytlick til félagsins strax í sumar frá Flensburg en það gekk ekki eftir. Simon Pytlick gengur ekki í raðir Berlínar-liðsins fyrr en næsta sumar.

Í greininni á Handball-World segir að eins og staðan er nú er hinn 23 ára Matthes Langhoff talinn líklegastur til að taka við hlutverkinu sem vinstri skytta.

„Við berum fullt traust til Matthes Langhoff,“ er haft eftir framkvæmdastjóranum Bob Hanning.

Félagið hefur einnig fengið Frederik Simak til baka og bindur miklar vonir við hann. Simak er fyrst og fremst varnarmaður en getur einnig leyst af í sókn. Þrátt fyrir brotthvarf Andersson er ekki víst að Füchse Berlin sæki nýjan leikmann í hans stað.

„Ef rétti kosturinn er ekki í boði þá gerum við frekar ekkert heldur en að gera bara eitthvað,“ sagði þjálfarinn og íþróttastjórinn Nicolaj Krickau.

Samkvæmt Handball-World gæti það þýtt að félagið þurfi að endurskoða markmið sín fyrir komandi tímabil.

Lasse Andersson er ekki eini lykilleikmaðurinn sem hefur yfirgefið Füchse Berlin í sumar.

Markvörðurinn Dejan Milosavljev hefur gengið til liðs við Industria Kielce, en sænski markvörðurinn Andreas Palicka hefur verið fenginn í hans stað. Til lengri tíma litið hefur Füchse Berlin þó þegar tryggt sér tvo af eftirsóttustu leikmönnum Evrópu. Árið 2027 munu bæði Simon Pytlick og franski landsliðsmaðurinn Dika Mem ganga til liðs við félagið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top