Samkvæmt heimildum Handkastsins tilkynnti Stefán Magni Hjartarson hægri hornamaður Aftureldingar stjórnarmönnum félagsins fyrr í júní að hann vildi yfirgefa félagið og leita sér nýrra verkefna. Kom það stjórnarmönnum Aftureldingar í opna skjöldu samkvæmt heimildum Handkastsins. Mál hægri hornamannsins, Stefáns Magna hjá Aftureldingu virðist að mörgu leyti minna á stöðu Eiðs Rafns Valssonar hjá Fram, sem Handkastið greindi frá fyrr í vikunni. VILL FARA FRÁ FRAM STUTTU EFTIR AÐ HAFA FRAMLENGT SAMNINGI SÍNUM Stuttu eftir fund Stefáns Magna með stjórnarmönnum Aftureldingar hafði Ágúst Bjarni Garðarsson, formaður handknattleiksdeildar FH samband við forráðamenn Aftureldingar og lýsti yfir áhuga á að fá leikmanninn til félagsins. Samkvæmt heimildum Handkastsins voru viðræður þó skammlífar þar sem FH var ekki tilbúið að greiða það verð sem Afturelding setti á Stefán Magna. Málið vekur athygli þar sem það er keimlíkt stöðunni sem kom upp hjá Fram. Eins og Handkastið greindi frá fór Eiður Rafn Valsson á fund með stjórn handknattleiksdeildar Fram og óskaði eftir því að fá að yfirgefa félagið af persónulegum ástæðum. Stuttu síðar hafði FH samband við Fram og lýsti yfir áhuga á að fá leikmanninn. Í báðum tilvikum óskaði leikmaður fyrst eftir að komast frá sínu félagi áður en FH hafði samband við viðkomandi félög vegna mögulegra félagaskipta. Samkvæmt heimildum Handkastsins höfðu engin önnur félög sambönd við félögin tvö og sýndu leikmönnunum áhuga, sem gerir þetta mál enn athyglisverðara. Málin tvö hafa vakið talsverða umræðu innan handboltahreyfingarinnar síðustu daga. Margir hafa velt því fyrir sér hversu líklegt það sé að tveir örvhentir hornamenn, úr sitthvoru félaginu, óski með skömmu millibili eftir því að yfirgefa sín félög og að FH hafi í kjölfarið samband við bæði félögin og lýsi yfir áhuga á leikmönnunum. Athygli vekur einnig að Eiður Rafn skrifaði undir nýjan langtímasamning við Fram í apríl á þessu ári sem gildir til ársins 2029. Það gerir ósk hans um að yfirgefa félagið aðeins nokkrum mánuðum síðar enn óvæntari. Ástæða áhuga FH á hægri hornamönnum er engu að síður skiljanleg. Birgir Már Birgisson yfirgaf félagið í maí þegar hann samdi við svissneska félagið GC Amicitia Zürich og því eru FH-ingar í leit að eftirmanni hans og þá hélt Kristófer Máni Jónasson út í nám og hafa FH-ingar því misst tvo hægri hornamenn frá síðustu leiktíð. Eftir tímabilið urðu einnig breytingar á þjálfarateymi FH þegar Aron Pálmarsson tók við sem aðalþjálfari af Sigursteini Arndal. Sigursteinn verður áfram hjá félaginu sem aðstoðarþjálfari Arons. Það verður fróðlegt að sjá hvar Stefán Magni Hjartarson og Eiður Rafn Valsson leika á næsta tímabili. Stefán Magni er þessa dagana að undirbúa sig fyrir Evrópumótið með U18 ára drengja landsliði Íslands sem hefst á miðvikudaginn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.