Bergerud snýr aftur til Danmerkur
LISELOTTE SABROE / Ritzau Scanpix via AFP

Norski landsliðsmarkvörðurinn Torbjørn Bergerud hefur gengið til liðs við danska úrvalsdeildarfélagið Fredericia Håndbold og skrifað undir samning sem gildir til sumarsins 2029.

Bergerud sem er 31 árs kemur til félagsins frá pólska stórliðinu Wisła Płock og snýr þar með aftur í danskan handbolta. Á ferli sínum hefur hann meðal annars leikið með GOG, SG Flensburg-Handewitt og Kolstad, auk þess sem hann hefur um árabil verið einn af lykilmönnum norska landsliðsins.

Framkvæmdastjóri Fredericia, Thomas Renneberg-Larsen, segir komu Bergerud vera mikinn liðsstyrk.

„Við fáum markvörð sem getur skipt sköpum frá fyrsta degi. Hann kemur með mikla reynslu, einstaka fagmennsku og sterkt sigurhugarfar sem mun styrkja bæði liðið og daglegt starf í kringum hópinn. Við erum afar stolt af því að Torbjørn hafi valið Fredericia,“ sagði Renneberg-Larsen.

Bergerud segist hlakka mikið til þess að snúa aftur í danskan handbolta og einu sterkustu deild í Evrópu. Þá hefur metnað félagsins heillað hann.

,,Fredericia kynnti fyrir mér verkefni sem mér fannst bæði spennandi og metnaðarfullt. Eftir samtölin við félagið fann ég hversu mikill eldmóður er fyrir verkefninu og það gerði ákvörðunina auðvelda. Ég trúi því að við getum náð miklum árangri saman.“

Markvörðurinn segist einnig hafa mikinn metnað fyrir komandi ár.

„Ég vil berjast um verðlaun og halda áfram þeirri uppbyggingu sem félagið hefur verið í undanfarin tímabil. Ég hef áður spilað í höllinni þeirra sem andstæðingur og veit hversu frábæran stuðning liðið fær. Nú hlakka ég til að upplifa stemninguna með stuðningsmönnum Fredericia að baki mér.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top