Sænsku meistarnir í IFK Kristianstad hafa staðfest áhuga sinn á að fá sænska landsliðsmanninn Jim Gottfridsson til liðs við félagið. Það er Hen Livgot sem segir frá á samfélagsmiðlinum X. Samkvæmt félaginu er meginmarkmiðið að bæta við reynslumiklum leikmanni sem geti styrkt hópinn fyrir komandi tímabil, en liðið mun taka þátt í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Þjálfari IFK Kristianstad, Björn Sätherström, segir að viðræður við Gottfridsson hafi verið jákvæðar, en viðurkennir jafnframt að félagið eigi erfitt með að keppa fjárhagslega við stærstu félög þýsku Bundesligunnar. „Við höfum átt góð samtöl við Jim, en við getum ekki keppt fjárhagslega við stærstu félögin í Þýskalandi,“ sagði Sätherström. Jim Gottfridsson hefur verið orðaður við Rhein Neckar Löwen og danska félagið HØJ Elite. Gottfridsson hefur verið án félags síðan samningi hans við Pick Szeged var rift í apríl. HVAR SPILAR GOTTFRIDSSON Á NÆSTA TÍMABILI? Ummæli þjálfarans gefa til kynna að IFK Kristianstad hafi mikinn áhuga á að fá leikmanninn heim til Svíþjóðar, en að fjárhagslegir þættir geti reynst stærsta hindrunin í samningaviðræðum. Gunnar Steinn Jónsson er aðstoðarþjálfari IFK Kristianstad og Íslendingarnir, Einar Bragi Aðalsteinsson, Andri Erlingsson og Baldur Fritz Bjarnason munu leika með liðinu á næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.