Þjálfari færeyska landsliðsins vonsvikinn
Cornelius Poppe / NTB / AFP

Landsliðsþjálfari Færeyja, Daninn Peter Bredsdorff-Larsen segist vonsvikinn eftir að Alþjóðaólympíunefndin (IOC) hafnaði því að Færeyjar fengju að keppa sem sjálfstæð þjóð á Ólympíuleikum. 

Ákvörðunin var tilkynnt aðeins nokkrum dögum eftir að danska þingið hvatti IOC formlega til að viðurkenna bæði Færeyjar og Grænland sem sjálfstæðar ólympíuþjóðir. Alþjóðaólympíunefndin vísaði beiðninni hins vegar á bug og benti á að samkvæmt reglum hennar geti aðeins sjálfstæð ríki, sem njóta alþjóðlegrar viðurkenningar, átt eigin Ólympíunefnd. 

Þar með geta Færeyjar ekki keppt undir eigin fána á Ólympíuleikum, þrátt fyrir að karlalandsliðið eigi raunhæfan möguleika á að tryggja sér þátttökurétt á leikunum með góðum árangri á heimsmeistaramótinu í handbolta í janúar. 

Í dag keppa færeyskir íþróttamenn á Ólympíuleikunum undir dönskum fána.

„Þetta eru auðvitað vonbrigði að þetta skuli ekki vera möguleiki. Það kemur kannski ekki mjög á óvart og við þorðum líklega ekki að vona að þetta myndi gerast fyrir næstu Ólympíuleika, en vonuðum að það gæti orðið að veruleika síðar,“ sagði Bredsdorff-Larsen í samtali við Se & Hør.

Ákvörðunin kemur á sama tíma og færskur handbolti hefur tekið miklum framförum.

Bæði karla og kvennalandslið Færeyja hafa fest sig í sessi meðal sterkari þjóða Evrópu og er færeyska karla landsliðið til að mynda á leið á sitt fyrsta heimsmeistaramót í janúar á næsta ári. Þá hafa yngri landslið Færeyja ítrekað náð framúrskarandi árangri á alþjóðavettvangi.

Þrátt fyrir þann íþróttalega árangur munu færeyskir íþróttamenn áfram aðeins geta tekið þátt á Ólympíuleikum undir fána Danmerkur, þar sem Færeyjar eru hluti af Konungsríki Danmerkur og uppfylla ekki gildandi skilyrði IOC um sjálfstæða ólympíuþjóð. 

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top