Handkastið heldur áfram að hita upp fyrir Olís-deild kvenna tímabilið 2026/2027 og hefur fengið einn af sérfræðingum sínum, Einar Inga Hrafnsson til að sjóða saman í ótímabæra spá. Þetta er fyrsta ótímabæra spáin fyrir næsta tímabil en tímabilið í Olís-deild kvenna hefst í upphafi september mánaðar. Fjölgað hefur verið um tvö lið í Olís-deild karla frá síðustu leiktíð og því verða 10 lið sem leika í deild þeirra bestu á næstu leiktíð. Gefum Einari Inga Hrafnssyni orðið: Nú er komið að stelpunum og Olís-deild kvenna, þar sem ætla má að við fáum meiri spennu og jafnari deild en undafarin ár. Úrslitaeinvígið á síðasta tímabili voru ákveðin vonbrigði fyrir hinn almenna stuðningsmann kvennaboltans. Fyrirfram mátti búast við jöfnu og spennandi einvígi hjá Val og ÍBV í barráttunni um Íslandsmeistaratitilinn, þar sem meiðsli og forföll höfðu verið að elta lið Vals í lengri tíma og ungar og óreyndar stelpur komnar á stóra sviðið 1-2 árum fyrr en áætlað var. Á meðan lið ÍBV var að vaxa, Birna Berg að toppa á réttum tíma og Sandra frábær, sem og að aukaleikararnir í Eyjum virtust á mjög góðum stað. En þetta Valsliðið, sem var keyrt áfram af stórkostlegri Lovísu Thompson og Hafdísi í markinu gaf ekkert eftir. Með ungu stelpurnar dansandi í kringum þessar tvær stórstjörnur fékk liði ÍBV aldrei trú og vann Valur að lokum nokkuð sannfærandi þrjá leiki af fjórum og Íslandsmeistaratitilinn. Lið ÍBV virkaði þreytt í úrslitaeinvíginu eftir hörku einvígi gegn Haukum þar sem úrslitin réðust í oddaleik og í tvíframlengingu, og má segja að meiðsli Amalie Froland í oddaleiknum í undanúrslitunum hafi drepið trú liðsins á að geta sigrað Val í úrslitaeinvíginu. Það er nokkuð ljóst að liðin í Olísdeild kvenna eru ennþá að styrkja sig. Enn er ómótaðir leikmannahópar hjá mörgum liðum og sumarið á leikmannamarkaðnum innanlands og ekki síður erlendis verður spennandi, og vert að fylgjast með. Tilkoma Andreu Jacobsen vegur þyngst og setur lið ÍBV á toppinn í fyrstu ótímabæru spá vetrarins, þar sem Valur og Haukar munu keppast um annað sætið og nýliðar HK í nýrri og stærri 10 liða olísdeild kvenna kemst inní 8 liða úrslitakeppni. Á meðan Víkingar falla aftur niður í Grill66-deildina. Fyrsta ótímabæra spáin fyrir Olís-deild karla 2026/2027:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.