THW Kiel svarar harðri gagnrýni vegna Færeyjaferðar
Philipp Szyza /AFP

Þýska stórliðið THW Kiel hefur brugðist við harðri gagnrýni sem félagið hefur sætt síðustu daga vegna þátttöku sinnar í Wenzel Nordic Cup æfingamótinu sem fram fer í Færeyjum í ágúst. Valur verður meðal þátttökuliða á mótinu ásamt H71 og danskafélaginu, GOG.

Dýraverndarsamtökin Gesellschaft zur Rettung der Delphine (GRD) hafa gagnrýnt ákvörðun Kiel harðlega og telja að þátttaka á mótinu sé óásættanleg í ljósi hinnar umdeildu grindadrápshefðar í Færeyjum. Samtökin hafa hvatt Kiel til að hætta við ferðina og sakað félagið um að leggja óbeinan stuðning við hefðina með þátttöku sinni.

Nú hefur framkvæmdastjóri THW Kiel, Anja Niemann, svarað gagnrýninni og segir ljóst að ferð félagsins hafi ekkert með pólitík eða samfélagsmál að gera.

„Þátttaka okkar í Wenzel Nordic Cup er eingöngu íþróttalegs eðlis og snýst aðeins um handbolta,“ sagði Niemann í samtali við Handball-World.

Niemann segir að THW Kiel líti á það sem hluta af hlutverki sínu að styðja við þróun handboltans á svæðum þar sem íþróttin skipar stóran sess. Þar vitnar félagið í mikinn uppgangs handboltans í Færeyjum.

„Við teljum það einnig vera hlutverk THW Kiel að taka þátt í uppbyggingu handboltans á svæðum þar sem áhuginn á íþróttinni er mikill. Í Færeyjum sameinar handboltinn allar kynslóðir."

Hún undirstrikar jafnframt að ekki sé hægt að draga þá ályktun að þátttaka félagsins jafngildi stuðningi við aðrar hefðir eða stefnumál Færeyja.

„Þátttaka okkar í æfingamóti felur hvorki í sér afstöðu né stuðning við einstakar samfélagslegar eða pólitískar venjur í því landi þar sem mótið fer fram.“

Framkvæmdastjórinn segir jafnframt að félagið beri virðingu fyrir starfi GRD við verndun sjávarspendýra og hafi í raun reynt að hefja samstarf við samtökin. Samkvæmt Niemann bauð THW Kiel GRD að nýta umhverfisverkefni félagsins, „För de Küste“, sem vettvang til að vekja athygli á málstað sínum.

„Við metum starf GRD við verndun sjávarspendýra mikils. Með verkefninu okkar hefðum við getað boðið samtökunum sterkan vettvang til lengri tíma.“

Hún segir hins vegar að tilraunir félagsins til samtals hafi ekki borið árangur. „Því miður tókst ekki að koma á málefnalegu og lausnamiðuðu samstarfi við GRD þar sem skýringar okkar og boð um samtal fengu ekki hljómgrunn.“

Mótið hefst í ágúst

Þrátt fyrir gagnrýnina stendur THW Kiel við ákvörðun sína og verður meðal þátttakenda á Wenzel Nordic Cup, sem fram fer á Færeyjum dagana 13.–16. ágúst.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top