Enn eitt tap U20 á EM staðreynd
HSÍ

Íslenska U20 ára landsliðið tapaði fyrir Noregi 27-31 eftir erfiðan leik.

Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en íslenska liðið þó skrefinu á undan og voru tveimur mörkum yfir í hálfleik 14-12.

Íslenska liðið hóf seinni hálfleikinn hinsvegar ekki nægilega vel og Noregur náði snemma forskoti.

Um miðbik seinni hálfleiksins kom afleitur kafli sóknarlega hjá íslenska liðinu þar sem liðið skoraði ekki mark í rétt um 10 mínútur.

Mörg góð færi fóru forgörðum á meðan Norðmenn skoruðu úr sínum sóknum og það var Alexander Ásgrímssyni markverði að þakka að ekki fór verr.

Íslenska liðið náði aðeins að klóra í bakkann undir lok leiks en það var of lítið og of seint. Enn eitt tap liðsins á mótinu staðreynd.

Hvorki Stefán Magni né Elís Þór spiluðu með liðinu í dag en Stefán Magni var veikur og Elís meiddur.

Ágúst Guðmundsson og Jens Bragi Bergþóruson voru markahæstir í íslenska liðnu með 6 mörk hvor. Daníel Montoro og Andri Erlingsson skoruðu 3 mörk hvor, Harri Halldórsson, Ingvar Dagur Gunnarsson, og Magnús Dagur Jónatansson skoruðu 2 mörk hver og Borgir Leó Stefánsson, Bessi Teitsson og Antoine Óskar Pantano skoruðu 1 mark hver.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top