Áfrýjar dómi í máli Mathias Gidsel og fleiri íþróttastjarna
EHF/kolektiff)

Better Collective hefur ákveðið að áfrýja dómi þar sem fyrirtækinu var gert að greiða alls 6,6 milljónir danskra króna í skaðabætur til Mathias Gidsel, fjölda annarra danskra íþróttamanna og danska handknattleikssambandsins.

Málið snýst um notkun á myndum af íþróttafólkinu í tengslum við veðmálaumfjöllun án þess að leyfi hefði verið fengið.

Áfrýjunin þýðir að endanleg niðurstaða í málinu mun dragast og þurfa Gidsel og aðrir stefnendur því að bíða lengur eftir lokaúrskurði.

Better Collective staðfesti áfrýjunina við danska miðilinn Ekstra Bladet.

„Ég get staðfest að dómnum hefur verið áfrýjað þar sem við teljum að málið varði mikilvægar lagalegar grundvallarspurningar,“ sagði Toke Parbo Hansen, sem ber ábyrgð á daglegum rekstri SpilXperten.

SpilXperten er í eigu Better Collective og snerist málið um notkun miðilsins á myndum af þekktum dönskum íþróttamönnum í efni sem tengdist veðmálum.

Um tuttugu danskir handknattleiksmenn ásamt danska handknattleikssambandinu (DanskHåndbold) töldu að myndir þeirra hefðu verið nýttar í auglýsinga- og markaðsskyni án samþykkis þeirra.

Einnig voru badmintonstjörnurnar Viktor Axelsen og Anders Antonsen meðal stefnenda í málinu.

Héraðsdómur féll þeim í vil í síðasta mánuði og dæmdi Better Collective til að greiða samtals 6,6 milljónir danskra króna í skaðabætur.

Með áfrýjun fyrirtækisins verður málið nú tekið fyrir á æðra dómstigi áður en endanleg niðurstaða fæst.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top