Evgeny Trefilov, einn sigursælasti þjálfari í sögu rússnesks handbolta og jafnan kallaður „Rússneski björninn“, fagnar ákvörðun Alþjóða handknattleikssambandsins (IHF) um að heimila Rússlandi og Hvíta-Rússlandi að snúa aftur til alþjóðlegra móta á vegum sambandsins. Á sama tíma beinir hann harðri gagnrýni að Evrópska handknattleikssambandinu (EHF), sem hefur enn ekki gefið út hvort það hyggist aflétta banni á rússneskum landsliðum og félagsliðum í Evrópukeppnum. „Það var heimskulegt og fáránlegt að útiloka okkur. Ég óska öllum til hamingju með þessa ákvörðun. En það er eitt vandamál. IHF hefur hleypt okkur aftur inn, en EHF hefur ekki sagt eitt orð. Þeir þegja og ég óttast að þeir muni ekki breyta afstöðu sinni. Það mikilvægasta er þó að nú hafa þeir ekki lengur neinn til að fela sig á bak við,“ sagði Trefilov í samtali við rússneska miðilinn Sport-Express. Þótt IHF hafi nú aflétt banninu er það ákvörðun EHF sem gæti haft mest áhrif á rússneskan handbolta á næstu misserum. Evrópska sambandið hefur enn ekki tilkynnt hvort rússnesk landslið og félög fái á ný að taka þátt í Evrópumótum á borð við Evrópumót landsliða, Meistaradeildina og Evrópudeildina. Á meðan sú ákvörðun liggur ekki fyrir er óvíst hvenær rússneskur handbolti getur snúið aftur á evrópska sviðið, þrátt fyrir grænt ljós frá Alþjóða handknattleikssambandinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.