Stórsigur í lokaleik Evrópumótsins
HSÍ

Íslenska U20 ára liðið lagði heimamenn í Rúmeníu 39-26 á Evrópumótinu í Rúmeníu og tryggði sér um leið 13.sætið í mótinu.

Sigurinn var í raun aldrei í hættu og náðu strákarnir fimm marka forskoti eftir um 15 mínútna leik og leiddu með 11 mörkum í hálfleik 21-10.

Strákarnir slökuðu svo ekkert á klónni í síðari hálfleik og unnu öruggan 13 marka sigur, 39-26 og var greinilegt frá fyrstu mínútu að íslenska liðið væri töluvert sterkara en heimamenn.

Íslenska liðið lýkur því keppni á Evrópumótinu í 13.sæti.

Stefán Magni Hjartarson var markahæstur hjá íslenska liðinu í dag með 7 mörk. Birgir Leó Stefánsson, Ágúst Guðmundsson og Bessi Teitsson skoruðu allir 5 mörk. Harri Halldórsson og Andri Erlingsson skoruðu 4 mörk. Ingvar Dagur Gunnarsson, Jens Bragi Bergþórsson og Jökull Blöndal Björnsson skoruðu allir 2 mörk. Magnús Dagur Jónatansson, Dagur Leó Fannarsson Antoine Óskar Pantano skoruðu svo allir 1 mark hvor.

Alexander Ásgrímsson átti frábæran leik í markinu og varði 12 skot eða 50% skotanna sem komu á hann og Jens Sigurðsson varði 5 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top