Karlalið Vals tekur þátt í afar sterku alþjóðlegu móti í Þórshöfn í Færeyjum í ágúst. Mótið fer fram dagana 13. - 16. ágúst og verður hluti af undirbúningi Vals fyrir Olís-deildina á næstu leiktíð. Fjögur lið taka þátt á mótinu en auk Vals verður færeyska lið H71, þýska stórliðið Kiel og danska stórliðið, GOG. GOG leikur í Meistaradeildinni á þessu tímabili. Leikir mótsins fara fram í þjóðahöllinni í Færeyjum, við Tjarnir. Á vef in.fo segir að mótið verði það stærsta sem fram hefur farið á vettvangi félagsliða í Færeyjum. Mikil færeysk tenging er við öll erlendu félögin sem taka þátt í mótinu. Með liði Vals leika færeysku landsliðsmennirnir, Allan Norðberg og Bjarni í Selvindi auk þess sem þjálfari Vals, Ágúst Þór Jóhannsson þjálfaði færeyska kvennalandsliðið á sínum tíma. Elias Ellefsen á Skipagøtu er leikmaður THW Kiel í þýsku úrvalsdeildinni og frændi hans, Óli Mittún, er lykilmaður í liði GOG í Danmörku en liðið er í 2.sæti dönsku úrvalsdeildarinnar á eftir Álaborg. H71 eru ríkjandi meistarar í Færeyjum. Leikir Vals á mótinu: 14.ágúst 16.ágúst
13.ágúst
16:00 Valur - GOG
16:00 Valur - Kiel
13:00 H71 - Valur

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.