Áfall fyrir Eyjamenn – Sá markahæsti sleit krossband
Egill Bjarni Friðjónsson

ÍBV verður án eins af sínum mikilvægustu leikmönnum á komandi leiktíð en hægri skyttan Elís Þór Aðalsteinsson leikur ekkert með liðinu í Olís-deild karla eftir að hafa slitið krossband.

Meiðslin urðu í leik með U20 ára landsliði Íslands gegn Danmörku á Evrópumótinu í júlí. Um er að ræða mikið áfall fyrir bæði Elís og Eyjaliðið, enda var hann einn af bestu leikmönnum ÍBV á síðustu leiktíð.

Elís lýsti atvikinu og fyrstu viðbrögðum sínum í samtali við Handkastið.

„Þetta gerðist í byrjun seinni á móti Dönum. Við erum að keyra upp og ég fer í fintu og stíg eitthvað vitlaust í löppina og finn þá smell. Í klefanum eftir leik var ég skíthræddur um að þetta yrði niðurstaðan en þegar leið á var ég kominn með von um að þetta yrði ekki alvarlegt því ég var í stöðugum testum og kom alltaf vel úr þeim. Ég varð verkjaminni með deginum og var eiginlega orðinn alveg verkjalaus og það gaf mér ágætis von."

,,Tilfinningin að fá þetta staðfest var hræðileg og mikið áfall fyrir mig og fólkið í kringum mig. Næstu skref eru að hitta Örnólf og koma þessu af stað.“

Fjarvera Elísar skilur eftir sig stórt skarð í liði ÍBV. Hann var í lykilhlutverki hjá Eyjamönnum á síðustu leiktíð og hafði fest sig í sessi sem einn öflugasti leikmaður liðsins. Elís Þór er þriðji leikmaður ÍBV sem slítur krossband á einu ári en Jason Stefánsson sleit krossband í landsliðsverkefni síðasta sumar og þá sleit vinstri hornamaðurinn, Jakob Ingi Stefánsson krossband á síðasta tímabili.

Verkefnið að fylla skarð Elísar verður ekki einfalt. Þegar Elís varð frá að hverfa vegna meiðsla á síðustu leiktíð var það Egill Oddgeir Stefánsson sem steig upp og leysti hlutverk hans með ágætum. Egill verður hins vegar ekki til taks að þessu sinni, en hann hefur flutt upp á land og gengið til liðs við Gróttu í Grill66-deildinni.

Elís Þór var markahæsti leikmaður Eyjaliðsins á síðasta tímabili með 111 mörk þrátt fyrir að spila aðeins 17 leiki. Næst markahæsti leikmaður liðsins, Andri Erlingsson með 110 mörk hefur yfirgefið ÍBV og gengið í raðir Kristianstad í Svíþjóð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top