Freyr Aronsson var markahæstur í sigri íslenska U18 ára landsliðsins á Svartfjallalandi í fyrsta leik liðsins á Evrópumótinu sem hófst í Serbíu í dag. Íslenska liðið vann sannfærandi 14 marka sigur, 39-25 en Freyr var markahæstur í íslenska liðinu með tíu mörk. Alex Unnar Hallgrímsson kom næstur með sjö mörk. Íslenska liðið leiddi í hálfleik með níu mörkum 19-10 en eftir jafnan leik til að byrja með kom frábær kafli hjá íslenska liðinu um miðbik fyrri hálfleiks. Breytti liðið stöðunni úr 7-7 í 14-7 og mætti segja að um leið og sviðsskrekkurinn hafi farið af liðinu hafi Svartfellingar ekki átt möguleika í gríðar sterkt lið Íslands. Munurinn jókst hægt og bítandi þegar leið á seinni hálfleikinn og uppskar íslenska liðið loks fjórtán marka sigur, 39-25 sem var mesti munurinn á liðunum, allan leikinn. Frábær sigur í fyrsta leik og gefur góð fyrirheit um framhaldið en miklar væntingar eru gerðar til liðsins sem er afar vel skipað, bæði leikmannalega og þá er þjálfarateymið ekkert slor. Íslenska liðið mætir Ungverjum á morgun klukkan 17:30 á íslenskum tíma en Ungverjar mæta Sviss í 1.umferð riðilsins í kvöld. Markaskorar Íslands: Freyr Aronsson 10, Alex Unnar Hallgrímsson 7, Logi Finnsson 6, Ómar Darri Sigurgeirsson 4, Brynjar Narfi Arndal 3, Gunnar Róbertsson 3, Sigurður Atli Ragnarsson 3, Matthías Dagur Þorsteinsson 1, Anton Frans Sigurðsson 1, Bjarki Snorrason 1.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.