Íslensku piltarnir í U18 ára landsliðinu unnu annan stórsigur á Evrópumótinu sem fram fer í Serbíu þessa dagana. Strákarnir mæddu í dag Ungverjalandi og unnu 13 marka sigur, 28-41. Gunnar Róbertsson var allt í öllu í sóknarleik íslenska liðsins en hann skoraði 12 mörk í dag úr 13 skotum. Leikurinn var nokkuð jafn til að byrja með en íslensku strákarnir þó alltaf skrefi á undan. Undir lok fyrri hálfleiks slitu íslensku strákarnir örlítið frá ungverska liðinu og staðan 12-18 í hálfleik. Strákarnir mættu svo vel einbeittir inn í síðari hálfleikinn og var munurinn orðinn 10 mörk strax eftir 6 mínútna leik. Íslenska liðið gaf svo ekkert eftir og vann að lokum sanngjarnan 28-41 sigur. Gunnar Róbertsson var markahæstur með 12 mörk, Anton Frans Sigurðsson kom næstur á eftir með 7 mörk. Alex Unnar Hallgrímsson skoraði 5, Freyr Aronsson 4, Brynjar Narfi Arndal og Ómar Sigurgeirsson skoruðu 3 mörk hvor. Patrekur Smári Arnarsson og Logi Finnsson skoruðu 2 mörk hvor og Kristófer Tómas Gíslason, Matthías Dagur Þorsteinsson og Bjarki Snorrason skoruðu 1 mark hver. Strákarnir fá frídag á morgun en mæta svo Sviss á laugardaginn kl. 12:30 á íslenskum tíma.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.