Fyrrverandi íslenskur landsliðsmaður ráðinn hjá norsku félagi
Facebook

Fyrrverandi landsliðsmaður Íslands, Konráð Hatlemark Olavsson, hefur verið ráðinn í starf íþróttastjóra handknattleiksdeildar norska félagsins BSK. Hann hefur störf 1. ágúst og mun jafnframt þjálfa G20/recruit-lið félagsins til að byrja með.

Í tilkynningu frá BSK kemur fram að Konráð eigi að byggja ofan á það góða starf sem þegar sé unnið innan handknattleiksdeildarinnar. Áhersla verði lögð á að efla samvinnu milli liða, aldursflokka og þjálfara, stuðla að aukinni miðlun þekkingar og þróa sameiginlega íþróttastefnu fyrir félagið.

Til lengri tíma litið er stefnt að því að starf hans þróist yfir í hreint íþróttastjórastarf með yfirumsjón yfir faglegu starfi handknattleiksdeildarinnar.

Konráð á að baki glæsilegan feril sem leikmaður. Hann lék um 200 landsleiki fyrir Ísland, tók þátt í Ólympíuleikunum í Barcelona árið 1992 þar sem íslenska landsliðið hafnaði í fjórða sæti og lék einnig á nokkrum heimsmeistaramótum. Þá spilaði hann bæði á Íslandi og í þýsku Bundesligunni og vann fjölda titla á ferlinum.

Sem þjálfari hefur hann um áratugar reynslu úr norskum og íslenskum handbolta. Í Noregi hefur hann meðal annars þjálfað KIF Kristiansand og Randesund, auk þess að hafa setið í stjórn Randesund.

Árið 2012 lauk hann EHF Master Coach-menntuninni, sem er æðsta þjálfaramenntun Evrópska handknattleikssambandsins.

Konráð er jafnframt menntaður í fjármálum, viðskiptafræði og nýsköpunarstjórnun og hefur gegnt stjórnunarstöðum á sviði fjármála, markaðsmála, vöruþróunar, ráðgjafar og rekstrar.

Í tilkynningunni kemur einnig fram að Þórir Hergeirsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari norska kvennalandsliðsins, hafi mælt eindregið með ráðningunni. Að hans mati verði Konráð mikilvægur liðsauki, ekki aðeins fyrir BSK heldur einnig fyrir handknattleikssamfélagið í Ósló. Þórir sagði jafnframt að Konráð væri einn besti hornamaður sem Ísland hefði eignast.

BSK segist binda miklar vonir við ráðninguna og hlakkar til að fá Konrad formlega til starfa í byrjun ágúst.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top