Karlalið ÍBV varð fyrir miklu áfalli á dögunum þegar Elís Þór Aðalsteinsson sleit krossband í leik með U20 ára landsliði Íslands gegn Danmörku á Evrópumótinu. Elís var markahæsti leikmaður ÍBV á síðustu leiktíð og átti frábært tímabil. Meiðslin eru því mikið áfall fyrir bæði leikmanninn sjálfan og Eyjamenn, sem missa einn sinn mikilvægasta sóknarmann rétt fyrir upphaf nýs tímabils. Áður hafði Andri Erlingsson yfirgefið liðið en hann var næst markahæstur í liði ÍBV á síðustu leiktíð. „Þetta er bara ömurlegt. Þetta átti að vera hans ár. Hann er auðvitað brotinn greyið,“ segir Sigurður Bragason, aðstoðarþjálfari ÍBV, í samtali við Handkastið. Elís fer til Örnólfs 12. ágúst og vonast er til að hann fari beint í aðgerð í kjölfarið að sögn Sigurðar. Sigurður bendir jafnframt á að eftir að hafa kynnt sér krossbandameiðsli betur hafi hann rekist á rannsóknir sem bendi til þess að slík meiðsli geti verið ættgeng. „Báðar systur Elísar slitu krossband og mamma hans líka, en þær voru allar miklar handboltakonur. Jason (Stefánsson) sleit einnig krossband og mamma hans, Andrea Atla, sleit líka. Skoðaðu bara Þrastarfjölskylduna. Það er hálf glatað gen að fæðast með,“ segir Sigurður. Hann hefur jafnframt sterkar skoðanir á álagi ungra landsliðsmanna. „Ég er svo bara með mínar skoðanir á þessum barnalandsliðum. Mér finnst ekki vera nein fagmennska í þessu. Það er verið að taka krakka sem eru búnir að vera í brjáluðu álagi allan veturinn og henda þeim svo strax í maí í 110 prósent álag. Mér finnst það heimskulegt. Því miður er ég búinn að missa lykilleikmenn þrjú ár í röð í alvarleg meiðsli; Agnesi, Jason og nú Elís.“ Þarna á Sigurður Bragason við, Agnesi Lilju Styrmisdóttur sem var leikmaður hjá honum er, hann stýrði kvennaliði ÍBV og þá sleit Jason Stefánsson krossband á landsliðsæfingu síðasta sumar og missti af öllu síðasta tímabili. Staðan er sérstaklega erfið fyrir ÍBV þar sem Egill Oddgeir Stefánsson, sem gat leyst Elís af á síðustu leiktíð, hefur einnig yfirgefið félagið og gengið til liðs við Gróttu. Eyjamenn eru því án örvhentrar skyttu í augnablikinu. Sigurður staðfestir að félagið hafi kannað markaðinn í leit að styrkingu. „Vonandi. Vð erum með enga örvhenta skyttu. Við erum að leita og með alla arma úti. Við höfum skannað markaðinn og boðið nokkrum að koma. Þetta er bara rándýrt og því miður lítur út fyrir að við förum svona inn í mótið.“ Hann útilokar þó ekki að eitthvað geti gerst á allra næstu dögum. „Ef eitthvað gerist þá þarf það að gerast í þessari viku, þú fylgist með,“ segir Sigurður Bragason að lokum.Átti að vera hans ár
Hefur sínar skoðanir á barnalandsliðum
Hafa boðið leikmönnum að koma til Eyja

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.