Strákarnir í U18 komnir áfram í 8-liða úrslitin eftir enn einn stórsigurinn
Eyjólfur Garðarsson

Strákarnir í U18 ára landsliði Íslands vann stórsigur á Portúgal í síðasta leik sínum í milliriðlakeppninni á Evrópumótinu í Serbíu.

Strákarnir hafa unnið alla leiki sína á mótinu til þessa en þeir lögðu nú Portúgal 41-29 eftir að hafa verið 18-12 yfir í hálfleik.

Freyr Aronsson var markahæstur í dag með 9 mörk. Sigurður Atli Ragnarsson skoraði 5. Alex Unnar Hallgrímsson, Anton Frans Sigurðursson, Gunnar Róbertsson og Ómar Darri Sigurgeirsson skoruðu 4 mörk hver. Bjarki Snorrason skoraði 3 mörk. Brynjar Narfi Arndal og Kristófer Tómas Gíslason skoruðu 2 mörk hvor og Patrekur Smári Arnarsson, Matthías Dagur Þorsteinsson, Logi Finnsson og Morgan Goði Garner skoruðu 1 mark hver.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top