Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur Livey og Handknattleikssamband Íslands náð samkomulagi um að Livey taki yfir rekstur Handboltapassans frá og með komandi keppnistímabili. Handboltapassinn hefur verið í umsjón HSÍ síðustu þrjú tímabil og þar hafa áhorfendur heima í stofu getað fylgst með leikjum úr íslenskum handbolta í beinni útsendingu allt frá meistaraflokksleikjum og niður í 4.flokks leiki. Samkvæmt heimildum Handkastsins á þó enn eftir að skrifa undir endanlegan samning milli HSÍ og Livey, en búist er við að það verði gert á næstu dögum. Þrátt fyrir breytinguna munu áfram verða valdir leikir sýndir í opinni dagskrá á Sjónvarpi Símans. Hins vegar verður fyrirkomulagið ekki með sama hætti og undanfarin þrjú tímabil, þegar einn leikur í hverri umferð í Olís-deild karla og kvenna voru sýndir í opinni dagskrá. Livey hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem öflugur aðili á markaði fyrir íþróttaútsendingar hér á landi. Fyrirtækið er meðal annars með sýningarrétt á leikjum í Evrópudeild karla og Meistaradeild Evrópu í handbolta og hefur jafnframt sinnt útsendingum frá ýmsum öðrum íþróttaviðburðum, bæði hér heima og erlendis frá. Verði samningurinn formlega staðfestur á næstu dögum markar það tímamót í miðlun íslensks handbolta, þar sem rekstur Handboltapassans færist frá HSÍ til einkarekinnar streymisveitu í fyrsta sinn frá því þjónustan var tekin í notkun.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.