Viktor Gísli var með 20 þúsund krónur á mánuði
Ruben De La Rosa / NurPhoto via AFP

Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson hefur framlengt samning sinn við spænska stórveldið Barcelona til ársins 2029. Viktor Gísli gekk til liðs við Barcelona síðasta sumar og barðist þar um mínútur við einn besta markvörð heims, Emil Nielsen.

Nú hefur sá danski yfirgefið félagið og gengið í raðir ONE Veszprem. Barcelona átti frábært tímabil og vann fjóra titla, þar á meðal spænsku deildina og Meistaradeild Evrópu. Liðið tapaði aðeins einum leik allt tímabilið.

„Þetta er í fyrsta skiptið sem ég framlengi samning minn við félag. Það var markmiðið að vera aðeins lengur á sama stað heldur en ég hef verið að gera undanfarin ár. Kærastan mín er sátt, ég er sáttur, við unnum Meistaradeildina. Þetta var bara borðleggjandi að mínu mati,“ sagði Viktor Gísli í samtali við Sýn.

Óttast ekki samkeppnina

Í stað Danans, Emil Nielsen er kominn, spænski landsliðsmarkvörðurinn Sergey Hernández. Viktor segist ekki láta samkeppnina trufla sig.

„Það eru ekki margir sem fá að vera í þessari hringiðu og ég er bara mjög sáttur með að vera þar. Það er alltaf samkeppni í öllum þessum bestu liðum. Það er bara raunveruleikinn í þessum heimi. Maður getur ekki verið að forðast það og ætlast til að ná góðum árangri.“

Viktor segist einbeita sér að því sem hann sjálfur getur stjórnað.

„Ég er mjög fókuseraður á mína hluti, reyni að stjórna því sem ég get stjórnað. Hef trú á því að það muni skila mér góðum árangri eins og hefur gerst frá því að ég byrjaði að spila handbolta. Það breytist í rauninni ekkert.“

Janus Daði bætist í íslenska hópinn

Viktor Gísli verður ekki lengur eini Íslendingurinn í leikmannahópi Barcelona. Janus Daði Smárason, landsliðsfélagi hans, gekk nýverið til liðs við félagið og skrifaði einnig undir samning til ársins 2029. Viktor segir það mikinn kost að fá Íslending inn í hópinn.

„Að vera með öðrum Íslendingi í Barcelona er örugglega ennþá betra. Hann er hér til 2029 líka, vera saman í þessu, með smá festu.“

Hann segir það einnig miklu auðveldara að vera maður sjálfur þegar hægt er að tala íslensku við samherja.

„Það hjálpar til að vera með liðsfélaga af Norðurlöndunum en að vera með Íslendingi er allt annað. Að geta talað sitt tungumál á hverjum degi, að þurfa ekki að tala annað tungumál þar sem þú getur ekki alveg verið þú sjálfur því þú kannt ekki alveg öll orðin sem þú vilt segja.“

Segir kærustuna hafa stutt sig frá upphafi

Viktor Gísli segir stuðning kærustu sinnar, Jennýjar Fjólu, hafa skipt miklu máli á ferlinum. Hún hafi staðið með honum í gegnum flutninga milli landa og óvissuna sem fylgir atvinnumennsku í íþróttum. Þegar Viktor var á leið frá Íslandi til GOG í Danmörku, eftir aðeins nokkurra mánaða samband, hafi hún tekið fréttunum vel.

„Við vorum búin að vera saman í nokkra mánuði og ég lét hana vita að ég væri líklegast á leiðinni út eftir ár þá tók hún bara mjög vel í það um leið.“

Hún hafi meira að segja fjármagnað heimilisúttekt þeirra þegar þau fluttu til Danmerkur.

„Hún borgaði meira að segja fyrir öll húsgögnin okkar þegar við héldum til Danmerkur því hún var sú eina sem átti pening. Ég var bara á einhverjum tuttugu þúsund kalli á mánuði í Fram. Hún græjaði það.“

Viktor segist afar þakklátur fyrir stuðninginn.

„Ég er ævinlega þakklátur fyrir hana að nenna að vera í þessu með mér. Þetta er ógeðslega gaman en það koma erfiðir tímar. Sérstaklega þegar maður er að flytja mikið, skipta um lönd, tungumál.“

Hann segir Jenný einnig hafa verið duglega við að mynda tengsl og eignast vini á nýjum stöðum.

„Það sem hún gerir mjög vel er að finna sér vini hvar sem er. Hún er mjög góð í þessum félagslegu aðstæðum og bætir upp fyrir það hjá mér.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top