Besti leikmaður úrslitakeppninnar er Valur varð Íslandsmeistari tímabilið 2021/2022, Stiven Tobar Valencia er enn samningslaus og enn óvíst hvar hann leikur á næstu leiktíð. Samningur Stivens við portúgalska félagið, Benfica rann út fyrr í sumar en Stiven lék með liðinu þrjú tímabil. Hann gekkst undir axlaraðgerð fyrr í sumar og verður frá keppni þegar nýtt tímabil hefst. Handkastið greindi frá því fyrr í sumar að samkvæmt heimildum okkar væri Stiven Tobar búinn að semja við þýska úrvalsdeildarfélagið, HC Erlangen frá og með næsta sumri. Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur uppeldisfélag hans, Valur ekki enn boðið honum samning og hyggst ekki ætla að bjóða honum samning fyrir komandi tímabil. Valur samdi snemma á þessu ári við Bessa Teitsson vinstri hornamann Gróttu og U20 ára landsliðsins. Það ríkir því algjör óvissa um framtíð Stivens og hvar hann mun leika á næstu leiktíð en það er talið afar ósennilegt að Stiven gangi í raðir uppeldisfélags síns, Val eins og margir höfðu spáð eftir að ljóst var að hann hafi opnað á þann möguleika að leika í Olís-deildinni á næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.