Elvar Örn Jónsson gengur til liðs við Rhein-Neckar Löwen
Rhein Neckar Löwen

Íslenski landsliðsmaðurinn, Elvar Örn Jónsson hefur samið við Rhein-Neckar Löwen og gengur til liðs við þýska liðið sumarið 2027. Hann hefur skrifað undir fjögurra ára samning við félagið sem gildir til ársins 2031.

Elvar Örn, sem er 28 ára gamall, kemur til Löwen frá ríkjandi þýsku meisturunum í SC Magdeburg. Hann mun því ljúka samningi sínum við Magdeburg áður en hann heldur til Mannheim.

„Elvar tók að sér mikilvægt hlutverk hjá SC Magdeburg á síðasta tímabili. Hann er alhliða handboltamaður og býr yfir öllu því sem við þurfum í okkar leik. Gæði hans og reynsla í miðri vörninni, ásamt fjölhæfni hans í sókninni, munu gefa okkur möguleika á að spila enn hraðari handbolta frá 2027,“ segir Maik Machulla, þjálfari Löwen.

Holger Bachert, framkvæmdastjóri félagsins, segir Elvar Örn hafa verið algjöran óskaleikmann félagsins í stöðuna.

„Að við skyldum geta sannfært leikmann á borð við Elvar um að skrifa undir langtímasamning við Rhein-Neckar Löwen sýnir að við erum á réttri leið. Elvar var algjör óskaleikmaður okkar í þessa stöðu. Uwe, Maik og ég höfðum fylgst með honum um nokkurt skeið og fylgdumst náið með honum á síðasta tímabili. Við erum því mjög ánægðir með að sjá hann í gula búningnum frá 2027.“

Ætlar að spila með frænda sínum

Elvar Örn segist hafa sannfærst um framtíðarsýn Löwen eftir góðar viðræður við félagið.

„Löwen sannfærðu mig um þeirra leið í góðum samtölum. Þess vegna hlakka ég mjög til að verða hluti af Rhein-Neckar Löwen á næstu árum. Að geta þá spilað með frænda mínum Hauki er frábær bónus.“

„Það hefur alltaf verið gaman að spila í SAP Arena og stuðningsmennirnir skapa frábæra stemningu. Ég hlakka mikið til þess,“ segir Elvar Örn.

Elvar Örn er uppalinn á Selfossi og hóf handboltaferil sinn hjá Selfossi. Þar varð hann Íslandsmeistari árið 2019 áður en hann hélt til Skjern í Danmörku. Árið 2021 gekk hann til liðs við MT Melsungen og lék þar 117 leiki, þar sem hann skoraði 426 mörk.

Elvar Örn gekk síðan til liðs við SC Magdeburg sumarið 2025 og varð þýskur meistari með félaginu. Á síðasta tímabili skoraði hann 51 mark í 31 leik í þýsku úrvalsdeildinni.

Hann verður áfram í herbúðum Magdeburg út tímabilið 2026/27 áður en hann heldur til Rhein-Neckar Löwen.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top