Fjórtán dagar í Íslandsmótið og enn óvíst hvenær það byrjar
Eyjólfur Garðarsson

Það styttist óðum í að nýtt tímabil í íslenskum handbolta hefjist en þegar aðeins 14 dagar eru í að Olís-deild karla fer af stað ríkir enn mikil óvissa um sjálfa byrjun keppnistímabilsins.

Í dag er 20. ágúst og samkvæmt leikjadagskrá á Olís-deild karla að hefjast föstudaginn 4. september. Vandamálið er hins vegar að enn hefur ekki verið ákveðið hvenær þrír af sex leikjum 1. umferðar fara fram.

Það þýðir einfaldlega að tveimur vikum fyrir mót er enn ekki hægt að segja með vissu hvenær fyrsta umferð Olís-deildar karla verður leikin – né hvaða leikur verður formlega opnunarleikur tímabilsins.

Sama staða er uppi í Olís-deild kvenna. Þar á fyrsta umferðin að fara fram laugardaginn 5. september, eftir 16 daga, en enn á eftir að tímasetja tvo af fimm leikjum 1. umferðarinnar.

Þetta vekur skiljanlega spurningar um vinnubrögð HSÍ.

Handkastið hefur fengið veður af því að þjálfarar, leikmenn, stjórnarmenn félaga og stuðningsmenn skilji lítið í þessum seinagangi og telji með ólíkindum að svona stutt sé í upphaf keppnistímabilsins án þess að leikjadagskráin liggi að fullu fyrir.

Það er ekki bara spurning um að fólk vilji vita hvenær handboltaleikirnir fara fram. Félögin þurfa að skipuleggja æfingar, ferðir, auglýsingar og ýmis önnur praktísk atriði í kringum heimaleiki.

Og vandamálið einskorðast ekki við Olís deildirnar.

Grill66-deild karla á að hefjast 4. september, en samkvæmt leikjadagskrá HSÍ hefur aðeins verið tímasettir tveir af sex leikjum í 1. umferð. Í Grill66-deild kvenna á fyrsta umferðin að fara fram sunnudaginn 6. september og þar hefur aðeins einn af fjórum leikjum verið tímasettur.

Það er því erfitt að sjá annað en að undirbúningur HSÍ fyrir komandi keppnistímabil sé ekki kominn nægilega langt. Handkastið hefur ekki svör við því hvað veldur en á fundi fagráðs HSÍ sem var haldinn í gær þar sem þetta kom til tals, var fátt um svör hjá forsvarsmönnum HSÍ sem margir hverjir voru gáttaðir og vissu hreinilega ekki að því að staðan væri eins og hún er.

Þegar tvær vikur eru í upphaf Olís-deildar karla og enn er ekki búið að tímasetja helming leikjanna í fyrstu umferðinni verður að spyrja hvort hægt sé að gera betur.

Hvað sem verður, gerir Handkastið hinsvegar ráð fyrir því að 1.umferðin fari fram, hvenær allir leikirnir í 1.umferð Olís-deildum karla og kvenna, Grill66-deildum karla og kvenna fara fram er hinsvegar ómögulegt að segja til um, 14 dögum fyrir upphaf tímabilsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top