Tímabær spá fyrir Olís-deild kvenna
Sævar Jónasson

Nú er komið að síðustu spá Einars Inga Hrafnssonar sérfræðings Handkastsins um Olís-deildir karla og kvenna en 1.umferðin í Olís-deild kvenna hefst laugardaginn 5.september.

Það voru stórar fréttir í gærkvöldi þegar Víkingur dró kvennalið sitt úr keppni og inn kom Selfoss. Það hefur strax áhrif á tímabæra spá Einars Inga fyrir komandi tímabil.

Gefum Einari Inga orðið:

Það eru áhugaverðar breytingar í nýrri spá fyrir Olísdeild kvenna tímabilið 2026-2027. Deildin verður jafnari en gera mátti ráð fyrir í upphafi, og tilkoma Selfoss setur mikla spennu í neðri hlutann.

Það má búast við tví- jafnvel þrískiptri deild í vetur. ÍBV, Haukar og Valur verða að berjast um efstu þrjú sætin, á meðan FRAM stelpur gætu orðið smá einangraðar í fjórða sæti. Baráttan um sæti 5-10 verður skemmtileg, allt lið sem stefna á fimmta sætið, en á sama tíma getur eitt lítið áfall sett lið í umspil og jafnvel fall í vor.

Grótta skellir sér upp í 5. sætið í nýrri tímabærri spá, enda verið frábærar á undirbúningstímabilinu. Á meðan Stjarnan fellur um eitt sæti og tekur 6. sætið. ÍR gætu auðveldlega farið uppfyrir þessi tvö lið, en hlutirnir virðast ekki vera að smella hjá stelpunum úr breiðholtinu þessa stundina.

HK gætu vantað stöðugleikan á meðan Selfoss sem fengu óvænt sæti í deildinni í gær koma Meira sem óskrifað blað inní mótið. Þær hefðu líklega hagað undirbúningi aðeins öðruvísi með olísdeildina framundan frekar en Grill deildina.

KA/Þór virðast vera í smá basli, og tilkoma Selfoss setur þær í fallsætið í nýrri tímabærri spá. Undirrituðum finnst líklegt að norðan stelpur skoði erlenda markaðinn strax í dag og kanni styrkingu á liði sínu. En eftir þessar breytingar er alveg ljóst að þær verða að styrkja sig ef ekki á illa að fara.

Hvað varðar toppbaráttuna þá koma Eyjastelpur með sterkasta hópinn inn í mótið og halda toppsætinu. En öll þessi þrjú lið í efstu þremur sætunum gætu stolið mómentinu í deildarkeppninni og tekið þann bikar. Hinsvegar virðast öll þessi þrjú lið hafa einn veikleika komandi inní mótið sem gerir þetta extra spennandi. Val vantar aðalleikarann sem þær áttu í Lovísu í fyrra, til að taka af skarið. ÍBV vantar stöðugri markvörslu og Haukastelpum vantar meiri hraða í sinn leik.

Olís deild kvenna verður frábær skemmtun í ár og vert að fylgjast með.

  1. ÍBV
  2. Haukar
  3. Valur
  4. Fram
  5. Grótta
  6. Stjarnan
  7. ÍR
  8. HK
  9. Selfoss
  10. KA/Þór

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top