Vildi Víkingur einfaldlega kíkja í pakkann?
Emma Elísa Jónsdóttir

Víkingur þarf aðeins að greiða 250.000 krónur fyrir að draga kvennalið sitt úr Olís-deildinni níu dögum fyrir fyrsta leik. Spurningin er hvort sektin endurspegli raunverulegt umfang ákvörðunarinnar.

Víkingur dró í gær kvennalið sitt úr Olís-deildinni, aðeins níu dögum áður en flautað verður til fyrsta leiks í deildinni. Liðið mun þess í stað leika í Grill 66-deild kvenna á komandi keppnistímabili eins og það óskaði sér og því hefur ákvörðun félagsins litlar afleiðingar fyrir félagið, nema jú, þessi sekt.

Samkvæmt reglugerð HSÍ um handknattleiksmót er refsingin fyrir slíkt hins vegar ekki ýkja þung. Þar segir einfaldlega að dragi félag lið úr keppni í deildarmóti meistaraflokks skuli félagið sæta 250.000 króna sekt. Þar er hvergi tekið fram hvort það skipti máli hvort liðið dragi sig úr leik viku fyrir mót eða tveimur mánuðum fyrir mót, hvað þá degi fyrir mót.

Þar með vaknar áhugaverð spurning: Er 250.000 króna sekt í raun í samræmi við þá ákvörðun sem tekin var og þær afleiðingar sem hún hefur fyrir önnur félög í deildinni?

Það er ekki verið að draga í efa rétt Víkings til að endurmeta stöðu sína eða taka ákvörðun sem félagið telur rétta fyrir sitt lið. Hins vegar er tímasetningin það sem hlýtur að vekja athygli.

Í tilkynningu Víkings í gær segir að það sé einróma afstaða stjórnar handknattleiksdeildar að það samræmist betur metnaðarfullri vegferð félagsins að ungt meistaraflokkslið kvenna leiki í Grill 66-deildinni. Liðið sé skipað ungum og efnilegum leikmönnum sem séu metnaðarfullir og láti hag og framgang meistaraflokks kvenna sig miklu varða.

Einnig segir að liðið sé á spennandi en krefjandi stað í uppbyggingu sinni og félaginu sé annt um að tryggja veg og vanda liðsins sem best, bæði innan vallar sem utan.

Það er hins vegar eðlilegt að spyrja hvort ekki hafi mátt komast að þessari niðurstöðu mun fyrr.

Það var ekki ný staðreynd í lok ágúst, níu dögum fyrir fyrsta leik að Víkingur væri með "ungt og efnilegt" lið eins og félagið orðaði það sjálft í yfirlýsingu sinni. Leikmannahópurinn hefur legið fyrir allt sumarið og forsenda þess að taka sæti í Olís-deildinni var því ekki óþekkt þegar félagið ákvað að þiggja sætið.

Það má því velta því upp hvort ákvörðun um að taka þátt í efstu deild hafi verið tekin með nægilega langtímasjónarmið í huga.

Þegar Víkingur tekur þessa ákvörðun níu dögum fyrir fyrsta leik breytist sviðsmyndin ekki aðeins hjá félaginu sjálfu heldur einnig hjá öðrum liðum Olís-deildarinnar sem höfðu undirbúið sig fyrir tímabilið með það í huga hvaða lið voru skráð til leiks í mótið allt þar til níu dögum fyrir mót.

„Kíkja í pakkann“?

Það hefur enda heyrst sú líking að Víkingur hafi einfaldlega viljað „kíkja í pakkann“ áður en félagið afþakkaði sætið.

Líkingin er óneitanlega skemmtileg í ljósi þess að fram undan er þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Víkingur tók við sæti sínu í efstu deild, undirbjó sig fyrir þátttöku þar og ákvað síðan, þegar aðeins níu dagar voru í mót, að það væri ekki rétti vettvangurinn fyrir liðið.

En munurinn er sá að ákvörðun Víkings hefur áhrif á aðra þátttakendur í deildinni sem hafa ekki tekið þátt í þeirri ákvörðun.

„Fjölgun liða illa framkvæmd“

Athygli vakti einnig ummæli Ragnars Hermannssonar, starfandi styrktarþjálfara karla- og kvennaliðs Víkings, í gærkvöldi eftir að ákvörðun félagsins lá fyrir.

Ragnar sagði að fjölgun liða í Olís-deild kvenna hefði verið illa framkvæmd.

Ekki liggur fyrir hvað Ragnar átti við með þeim orðum. HSÍ virðist hins vegar hafa farið eftir þeim lögum og reglum sem gilda um deildaskiptingu og fjölgun liða. Í lögum sambandsins eru ákvæði um hvernig laus sæti skuli fyllt þegar lið dregur sig úr úrvalsdeild.

Því verður erfitt að setja ábyrgðina á þeirri stöðu sem nú er komin upp alfarið á HSÍ.

Ábyrgðin á ákvörðuninni að þessu sinni liggur hjá handknattleiksdeild Víkings.

Félagið tók sæti í Olís-deildinni, hélt því þar til níu dagar voru í fyrsta leik og ákvað þá að hætta við þátttökuna.

Það er fullkomlega skiljanlegt að félag geti þurft að endurmeta stöðu sína. En þegar slíkt er gert svo seint hlýtur að mega ræða hvort 250.000 króna sekt sé nægileg viðurlög við ákvörðun sem hefur svo mikil áhrif á keppnisumhverfi annarra félaga.

Reglurnar eru skýrar um upphæðina. Spurningin er hins vegar hvort reglurnar séu nógu vel úr garði gerðar þegar lið dregur sig úr deild svo skömmu fyrir mót.

Kannski er það einmitt umræðan sem þessi óvænta ákvörðun Víkings ætti að kalla fram.

HSÍ hefur sett fordæmi

Eftir ákvörðun Víkings að draga lið sitt úr keppni er ljóst að Selfoss kemur inn í deildina með níu daga fyrirvara en Selfoss vann Víking á Ragnarsmótinu í síðustu viku með 19 marka mun, 39-20. Þá vann liðið KA/Þór með sextán marka mun, 36-20 en KA/Þór leikur í Olís-deildinni.

Þarna má strax benda á dæmi um það hversu mikil áhrif þessi breyting, níu dögum fyrir mót getur haft á lið í deildinni en KA/Þór vann Víking á sama móti 29-23. Það má með þessum úrslitum gefa sér að töluvert sterkara lið er að koma inn í deildina svona stuttu fyrir mót.

Það má velta þeirri spurningu fyrir sér hvort HSÍ hafi með ákvörðun sinni að bjóða Selfoss sæti í Olís-deildinni með svona stuttum fyrirvara verið að hugsa um hag félaganna eða einfaldlega verið að hugsa um hag deildarinnar og því vörumerki sem HSÍ er með í höndunum. Gleymum því ekki, að HSÍ er ekkert annað en félögin og ættu að setja félögin í fyrsta sæti, alla daga ársins, en ekki bara þegar þeim hentar.

Fordæmin voru ekki til en nú hefur HSÍ sett fordæmi um að lið geta hætt þátttöku í efstu deildum á Íslandi með svo skömmum fyrirvara, sektin er nánast engin og sviðsmynd annarra félaga í deildinni gjörbreytist.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top