HSÍ leitar að yfirþjálfara í Hæfileikamótun
Photo by Pau BARRENA / AFP

Handknattleikssamband Íslands, HSÍ, leitar að metnaðarfullum og faglegum yfirþjálfara fyrir Hæfileikamótun sambandsins.

Hæfileikamótun HSÍ er þróunarverkefni fyrir efnilegt ungt handknattleiksfólk þar sem þátttakendur hittast fimm helgar á ári. Markmiðið er að stuðla að frekari þróun ungra leikmanna og móta næstu kynslóð íslensks handknattleiksfólks.

Á tímabilinu 2026–2027 verður Hæfileikamótunin fyrir leikmenn í 2013 árgangi og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst.

Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á gulli@hsi.is fyrir 15. september 2026.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu HSÍ.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top