18 ára undrabarn á leið til Szeged fyrir stórfé
IHF)

Ungverska stórliðið Pick Szeged er sagt vera við það að tryggja sér einn efnilegasta handboltamann Evrópu, Slóvenann Aljuš Anžič, frá Celje Pivovarna Laško.

Samkvæmt Handballia er Anzic nálægt því að skrifa undir fjögurra ára samning við Szeged sem tekur gildi frá og með næsta tímabili. Kaupverðið er sagt nema um 600 þúsund evrum.

Anžič er aðeins 18 ára gamall, fæddur 12. febrúar árið 2008, en hefur þrátt fyrir ungan aldur þegar vakið gríðarlega athygli. Hann leikur sem leikstjórnandi og skytta og er af mörgum talinn eitt mesta efni evrópsks handbolta.

Hann sló eftirminnilega í gegn á HM U19 í fyrra þar sem hann varð markahæsti leikmaður mótsins með 67 mörk og var valinn í úrvalslið mótsins, þá aðeins 17 ára gamall. Þá hafði hann skömmu áður skorað 61 mark á HM U21 þrátt fyrir að vera langyngsti leikmaðurinn mótsins.

Anzic er samningsbundinn Celje til sumarsins 2028 og því þyrfti Szeged að greiða myndarlega fyrir að fá hann ári fyrr. Celje hafði raunar tekið af allan vafa í sumar um að Anzic yrði áfram hjá félaginu á yfirstandandi tímabili.

Íslenskir handboltaáhugamenn geta fylgst með Anžič í eldlínunni strax í dag þegar Celje hefur leik í Meistaradeild Evrópu gegn RK Zagreb.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top