Skoraði níu mörk í röð fyrir Gummersbach
ANDREAS HILLERGREN /AFP

Svíinn, Nikola Roganović bauð upp á hreint ótrúlegan kafla þegar Gummersbach og Melsungen gerðu 31-31 jafntefli í þýsku Bundesligunni um síðustu helgi. Hinn tvítugi Roganović skoraði hvorki meira né minna en níu mörk Gummersbach í röð á fyrstu 14 mínútum leiksins.

Elliði Snær Viðarsson skoraði fyrsta mark Gummersbach og minnkaði muninn í 1-2 eftir rúmar tvær mínútur. Eftir það tók Roganović einfaldlega yfir.

Næstu níu mörk Gummersbach komu öll úr hægri hönd Svíans. Hann skoraði sitt fyrsta á þriðju mínútu og þegar hann kom Gummersbach í 10-8 eftir tæplega 14 mínútur hafði enginn annar leikmaður liðsins skorað frá marki Elliða. Roganović þurfti því aðeins rúmar ellefu mínútur til að skora níu mörk og var um tíma með 90% af öllum mörkum Gummersbach í leiknum.

Melsungen tókst loks að finna leið til að hægja á Roganović og fylgdi því eftir með 5-0 kafla. Gestirnir breyttu stöðunni úr 10-8 í 10-13 og fóru að lokum með 18-16 forskot inn í hálfleik. Roganović var þó langt frá því að vera hættur og hélt áfram að raða inn mörkum eftir hlé í leik sem endaði 31-31.

Frammistaðan vekur ekki síst athygli fyrir þær sakir að Roganović er aðeins tvítugur og var að leika sinn þriðja leik á ferlinum í þýsku Bundesligunni. Hann gekk til liðs við Gummersbach frá HK Malmö í sumar og leikur þar undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar.

Rætt var um frammistöðuna í nýjasta þætti Handkastsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top