
Mathias Gidsel, leikmaður Füchse Berlin, er markahæstur í þýsku úrvalsdeildinni eftir fimm umferðir. Daninn hefur skorað 43 mörk, tveimur fleiri en Kai Häfner hjá Stuttgart. Gísli Þorgeir Kristjánsson er markahæstur Íslendinga í deildinni með 26 mörk fyrir Magdeburg. Hann er í 20. sæti á markalista deildarinnar. Sjötta umferð deildarinnar hefst í dag með þremur leikjum. Þar ber hæst slag Kiel og Flensburg, sem hafa bæði unnið alla fimm leiki sína til þessa. Magdeburg tekur einnig á móti Bietigheim og Rhein-Neckar Löwen fær Melsungen í heimsókn. Leikur Füchse Berlin og Balingen, sem tilheyrir umferðinni, hefur verið færður vegna þátttöku Füchse Berlin á HM félagsliða. Tíu markahæstu eftir fimm umferðir: Leikir laugardagsins 26. september:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.