
Í dag mættust Harðverjar og Valur 2 í Grill 66 deild karla en leikið var í Íþróttahúsinu á Torfnesi á Ísafirði. Valsarar, sem voru einungis með 10 leikmenn á skýrslu í dag, voru heilt yfir sterkari aðilinn allan fyrri hálfleikinn. Þeir tóku frumkvæðið strax í byrjun og voru svo yfir 12-14 í hálfleik. Eftir um 10 mínútna leik í seinni hálfleik tóku heimamenn í Herði yfirhöndina í leiknum og náðu mest 5 marka forskoti. Sigldu þeir sigrinum heim að lokum þrátt fyrir að Valsarar hafi saumað vel að þeim undir lokin. Fyrsti sigur Harðverja á tímabilinu kominn í hús og þeir komnir á blað. Hjá Herði var Jonathan Santos markahæstur með 5 mörk. Hermann Alexander Hákonarson átti mjög flottan leik og varði 18 skot. Lazar Minic tók 1 víti. Hjá Val var Kári Steinn Guðmundsson með 7 mörk. Þórhallur Árni Höskuldsson varði 15 skot. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.