Haukar 2 og Víkingur 2 mættust í dag í Grill 66 deild karla en leikið var á Ásvöllum. Leikurinn var jafn fyrstu 10 mínúturnar en þá skildu leiðir. Haukarnir voru mun betri það sem eftir lifði hálfleiks. Staðan í hálfleik var 16-11 fyrir Haukana. Í seinni hálfleik var ljóst að Haukar voru ekkert að fara að slaka á klónni. Voru þeir fljótlega um miðbik hálfleiksins komnir í 9 marka forskot um miðbik hálfleiksins. Víkingarnir náðu aðeins að laga muninn undir lokin og urðu lokatölur 34-30 fyrir Haukana. Sannfærandi sigur hjá þeim. Markahæstur hjá Haukum var Helgi Marinó Kristófersson með 7 mörk. Ari Dignus Maríuson varði 14 skot. Hjá Víkingum var Reginn Thoroddsen Friðriksson markahæstur með 7 mörk. Kristján Rafn Oddsson varði 11 skot. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.