Felix Möller, línumaður Álaborgar, gæti verið á leið aftur í þýsku Bundesliguna en SG Flensburg-Handewitt er sagt hafa mikinn áhuga á Svíanum. RT Handball greinir frá þessu og segist hafa heimildir fyrir því að Flensburg horfi til hins 24 ára gamla Möller í leit sinni að frekari styrkingu á línunni. Arnar Freyr Arnarsson gekk til liðs við Flensburg frá Melsungen síðasta sumar og samdi aðeins til eins árs, eða út yfirstandandi tímabil. Samningur Arnars Freys rennur því út sumarið 2027 og gæti áhugi Flensburg á Möller bent til þess að þýska stórliðið sé þegar farið að horfa til þess hvernig línustaðan verður mönnuð á næsta tímabili. Fari svo að Möller gangi til liðs við Flensburg myndi hann jafnframt sameinast bróður sínum, Simon Möller, sem leikur nú þegar með Flensburg. Bræðurnir gætu því orðið liðsfélagar í Bundesligunni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.