Í kvöld mættust Fjölnir og Haukar 2 í Grill 66 deild karla en leikið var í Egilshöll. Fjölnis menn tóku strax öll völd á vellinum í fyrri hálfleik og voru heilt yfir mun betri í fyrri hálfleik. Mest náðu þeir 6 marka forskoti. Hálfleikstölur voru 20-14 fyrir Fjölni. Í seinni hálfleik slökuðu Fjölnismenn ekkert á klónni og héldu áfram sínu góða forskoti. Hélst munurinn í um 5-6 mörkum lengst af. Haukar áttu svo frábæran lokakafla á síðustu mínútum leiksins og saumuðu allverulega að heimamönnum. Daníel Máni Sigurgeirsson skoraði meðal annars 3 mörk á stuttum tíma undir lokin og minnkaði muninn í 1 mark. Gústaf Logi Gunnarsson jafnaði svo leikinn í 31-31 þegar lítið var eftir. Fjölnir tók leikhlé og fékk lokasóknina en náði ekki að færa sér það í nyt. Hjá Fjölni var Heiðmar Örn Björgvinsson markahæstur með 11 mörk. Garpur og Hilmar vörðu samtals 10 skot. Hjá Haukum 2 var Daníel Máni Sigurgeirsson markahæstur með 11 mörk. Ari Dignus varði 7 skot. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.