Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði 16 mörk þegar Haukar unnu Stjörnuna 32–28 á útivelli í Olís-deild kvenna í kvöld. Haukar leiddu 18–12 í hálfleik en Stjarnan náði að minnka tíu marka forskot gestanna niður í tvö mörk undir lokin. Haukar skoruðu fyrstu þrjú mörk leiksins og voru með forystuna allan tímann. Stjarnan minnkaði muninn í 8–7 en þá tóku Haukar við sér og skoruðu fimm mörk í röð. Gestirnir náðu mest sjö marka forskoti í fyrri hálfleik og fóru með sex marka forystu inn í leikhlé. Í síðari hálfleik héldu Haukar áfram að bæta við forskotið og komust í 25–15 og 26–16. Stjörnukonur gáfust hins vegar ekki upp og unnu sig jafnt og þétt aftur inn í leikinn. Þegar Sunna Katrín Hreinsdóttir minnkaði muninn í 30–28 voru tæpar tvær mínútur eftir. Embla Steindórsdóttir og Sonja Lind Sigsteinsdóttir skoruðu hins vegar síðustu tvö mörk leiksins og tryggðu Haukum fjögurra marka sigur. Jóhanna Margrét var langmarkahæst hjá Haukum með 16 mörk, nákvæmlega helming marka liðsins. Embla bætti við fimm mörkum og Rakel Oddný Guðmundsdóttir fjórum. Hjá Stjörnunni var Valgerður Elín Snorradóttir markahæst með 12 mörk og Inga Maria Roysdóttir skoraði níu. Þær stöllur skoruðu því 21 af 28 mörkum heimaliðsins. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.