Ingibjörg Gróa lokaði markinu í 7 marka sigri gegn Fram
Afturelding)

Í kvöld mættust Afturelding og Fram 2 í Grill 66 deild kvenna en leikið var í Mosfellsbæ.

Fyrri hálfleikur var jafn og spennandi. Mikið jafnræði var með liðunum en skiptust liðin líka á að leiða leikinn. Yfirleitt með 1-2 mörkum í báðar áttir. Hálfleikstölur voru 13-12.

Í seinni hálfleik náði UMFA fljótt yfirhöndinni og voru komnar 7 mörkum yfir eftir rúmlega 12 mínútna leik í seinni hálfleik. Eftir það var leikurinn ráðinn. Kláruðu þær leikinn sannfærandi og urðu lokatölur 29-22.

Aftureldingar stelpur halda því áfram á sigurbraut.

Hjá Aftureldingu voru Katrín Helga Davíðsdóttir og Rakel Dórothea Ágústsdóttir markahæstar með 10 mörk. Ingibjörg Gróa Guðmundsdóttir átti stórleik og varði 22 skot.

Hjá Fram 2 var Katla Kristín Hrafnkelsdóttir markahæst með 7 mörk. Arna Sif Jónsdóttir varði 20 skot.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top