ÍR enn með fullt hús eftir spennusigur á Nesinu
Sævar Jónasson

ÍR vann nauman sigur á Gróttu, 31–30, á Seltjarnarnesi í Olís-deild kvenna í kvöld. ÍR hefur þar með unnið alla fjóra leiki sína í deildinni og er með átta stig í þriðja sæti með jafn mörg stig og Haukar og Fram.

Grótta byrjaði betur og komst í 4–2 en ÍR náði fljótlega forystunni. Gestirnir leiddu með allt að þremur mörkum í fyrri hálfleik og staðan í leikhléi var 19–16 fyrir ÍR.

Gróttukonur komu sterkar inn í síðari hálfleik, jöfnuðu í 21–21 og komust síðan yfir. Heimaliðið náði tveggja marka forskoti og leiddi 28–26 áður en ÍR sneri taflinu við með fjórum mörkum í röð.

Ásthildur Bertha Bjarkadóttir kom ÍR í 29–28 og Sara Dögg Hjaltadóttir bætti við næsta marki. Elísa Helga Sigurðardóttir varði jafnframt mikilvæg skot á þessum kafla og hjálpaði gestunum að ná yfirhöndinni.

Solveig Lára Kjærnested skoraði síðasta mark ÍR þegar rúmar tvær mínútur voru eftir og kom liðinu í 31–29. Þóra María Sigurjónsdóttir minnkaði muninn í eitt mark þegar 24 sekúndur lifðu leiks en Grótta náði ekki að jafna.

Sara Dögg var markahæst hjá ÍR með sjö mörk. Anna María Aðalsteinsdóttir og Ásthildur Bertha skoruðu sex hvor en Sigrún Ása Ásgrímsdóttir fimm. Elísa Helga varði tíu skot í marki ÍR og Sif Hallgrímsdóttir tvö.

Hjá Gróttu skoruðu Karlotta Kjérulf Óskarsdóttir og Þóra María sjö mörk hvor en Eva Björk Davíðsdóttir sex. Andrea Gunnlaugsdóttir varði átta skot og Anna Karólína Ingadóttir eitt.

Grótta er með tvö stig eftir þrjá leiki og situr í sjöunda sæti deildarinnar.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top