Golla vill fara frá Melsungen eftir aðeins þrjá mánuði
ANDRZEJ IWANCZUK /AFP

Johannes Golla, fyrirliði þýska landsliðsins hefur óskað eftir því að fá að yfirgefa Melsungen af fjölskylduástæðum, aðeins þremur mánuðum eftir að hann gekk til liðs við félagið frá Flensburg.

Samkvæmt þýska miðlinum Bild vill hinn 28 ára gamli línumaður snúa aftur til Flensburg, helst strax næsta sumar. Golla er hins vegar samningsbundinn Melsungen til ársins 2031 og því ljóst að félögin þurfa að ná samkomulagi eigi félagaskiptin að ganga eftir.

Fjölskyldu Golla hefur reynst erfitt að koma sér fyrir á nýjum stað. Hann flutti til Melsungen ásamt eiginkonu sinni, Elenu, og tveimur ungum börnum þeirra eftir margra ára dvöl í Flensburg.

Jesper Larsson, yfirmaður íþróttamála hjá Melsungen, staðfestir við Bild að Golla hafi óskað eftir því að losna undan samningi sínum.

„Johannes hefur komið til okkar með ósk um að ljúka samningi sínum fyrir tímann. Fjölskyldan vill snúa aftur til Flensburg. Við virðum þessa ósk í grundvallaratriðum en málið er auðvitað ekki svo einfalt,“ segir Larsson.

Samkvæmt Bild eru viðræður félaganna þegar hafnar og Melsungen fer fram á að minnsta kosti 1,5 milljónir evra fyrir leikmanninn. Í samningi Golla er sögð vera riftunarklásúla sem tekur gildi sumarið 2028 og gerir honum kleift að fara fyrir 350–500 þúsund evrur, eftir þátttöku Melsungen í Evrópukeppnum.

Málið hefur einnig haft áhrif á samstarf Golla við umboðsskrifstofuna inteamsports. Hún hefur tilkynnt að samstarfi þeirra sé lokið eftir rúmlega tíu ár.

Golla er liðsfélagi Reynis Þórs Stefánssonar hjá Melsungen en hjá Flensburg leikur Arnar Freyr Arnarsson en samningur hans rennur út næsta sumar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top