Skanderborg með risa sigur í Íslendingaslag
Kristinn Steinn Traustason

Fjórir leikir fóru fram í dönsku úrvalsdeildinni í dag en meðal annars tóku Ribe-Esbjerg á móti Skanderborg og Ringsted mættu Bjerringbro-Silkeborg í hörkuleik á útivelli.

GOG mætti Kolding í fyrsta leik dagsins en fyrir leik voru GOG efstir í deildinni með sautján stig af átján mögulegum. Það var nóg af mörkum í leiknum en GOG vann þægilegan sigur með níu mörkum, 39-30.

Ribe-Esbjerg voru fyrir leik tveimur stigum á eftir GOG og þurftu á sigri að halda til að missa GOG ekki of langt fram úr sér en á sama skapi þurftu Skanderborg á stigunum að halda til að fjarlægjast neðri hlutann og komast nær toppliðunum. Gestirnir voru sterkari í fyrri hálfleik og leiddu með fimm mörkum í hálfleik, 14-19.

Heimamenn komu grimmari í seinni hálfleik og komust nær gestunum en náðu aldrei að jafna leikinn og að lokum sóttu gestirnir gríðarlega sterkan útisigur, 29-32 urðu lokatölurnar. Íslendingarnir voru í aðalhlutverki eins og svo oft áður en Elvar Ásgeirsson skoraði sjö mörk úr ellefu skotum og gaf fjórar stoðsendingar að auki fyrir heimamenn en hjá Skanderborg skoraði Kristján Örn Kristjánsson, Donni fimm mörk úr tólf skotum og gaf tvær stoðsendingar.

Ringsted mætti Bjerringbro-Silkeborg á útivelli í hörkuleik en staðan í hálfleik var 15-15. Spennan hélt áfram í síðari hálfleik en heimamönnum tókst að skora sigurmarkið þegar rétt rúm hálf mínúta var eftir af leiknum, lokatölur 31-30. Ísak Gústafsson skoraði þrjú mörk úr sjö skotum og gaf tvær stoðsendingar að auki. Ringsted áfram næstneðstir með þrjú stig, einu stigi meira en Skive.

En talandi um Skive, þeir mættu Fredericia á útivelli í síðasta leik dagsins en þar áttu heimamenn aldrei í neinum vandræðum með að sækja stigin tvö, lokatölurnar urðu 36-29 fyrir Fredericia.

Úrslit dagsins:

GOG 39-30 Kolding

Ribe-Esbjerg 29-32 Skanderborg

Bjerringbro-Silkeborg 31-30 Ringsted

Fredericia 36-29 Skive

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top