Nokkrir íslenskir handknattleiksmenn voru í eldlínunni með félagsliðum sínum víðs vegar um Evrópu í dag. Viktor Gísli Hallgrímsson átti góðan leik í marki Barcelona á meðan Elmar Erlingsson og Birgir Már Birgisson þurftu að sætta sig við tap með sínum liðum. Viktor Gísli Hallgrímsson varði 14 skot og var með 33% markvörslu í sigri Barcelona gegn Morrazo Cangas í spænsku úrvalsdeildinni. Janus Daði Smárason lék einnig með Barcelona en komst ekki á blað yfir markaskorara. Orri Freyr Þorkelsson skoraði eitt mark fyrir Sporting sem vann öruggan útisigur gegn Águas Santas, 37-28, í portúgölsku úrvalsdeildinni. Sporting leiddi með sjö mörkum í hálfleik, 21-14, og sigldi sigrinum örugglega heim. Sveinn Jóhannsson var í sigurliði Chambéry sem vann nauman eins marks sigur gegn Aix, 34-33, í frönsku úrvalsdeildinni. Sveinn skoraði tvö mörk í leiknum. Chambery er í 10.sæti deildarinnar eftir sigurinn en Aix er í því áttunda. Þorvaldur Örn Þorvaldsson var markahæstur hjá Wybrzeże Gdańsk með sex mörk þegar liðið tapaði gegn pólska stórliðinu Wisła Płock, 37-30, á útivelli. Heimamenn leiddu 20-15 í hálfleik og fögnuðu að lokum sjö marka sigri. Elmar Erlingsson komst ekki á blað yfir markaskorara hjá Nordhorn-Lingen sem tapaði á heimavelli gegn Ferndorf, 30-33, í þýsku B-deildinni. Elmar skaut fjórum sinnum að marki en ekkert skotanna rataði í netið. Hann gaf hins vegar fjórar stoðsendingar í leiknum. Birgir Már Birgisson skoraði tvö mörk fyrir Zürich sem tapaði gegn St. Gallen, 31-28, á útivelli í svissnesku úrvalsdeildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.