Santiago Bernabéu (Alexandre Martins / DPPI via AFP)
Undirbúningur fyrir Evrópumótið 2028 er farinn af stað en að mótinu standa Spánn, Portúgal og Sviss. Fulltrúar EHF voru í heimsókn á Spáni og í Portúgal á dögunum til þess að kanna aðstæður og skoða mögulega leikvelli. Það var þá sem hugmyndin að því að spila á heimavelli fótboltaliðsins Real Madrid kom til skoðunar. Santiago Bernabéu var nýlega tekinn í gegn og er hann með nýju þaki sem hægt er að loka og er völlurinn því í stakk búinn til þess að halda hina ýmsu viðburði. Gæti slegið nýtt áhorfendamet Ekki liggur þó fyrir hvort opnunarleikurinn verði spilaður á vellinum en ljóst er að ef svo væri myndi það lyfta ímynd handboltans á heimsvísu og auka sýnileika íþróttarinnar til muna.
Ef völlurinn yrði fyrir valinu er ljóst að það gæti verið mjög jákvæð ímynd fyrir handboltann og gæti mögulega slegið áhorfendamet á handboltaleik. Metið var sett á opnunarleik EM 2024 þegar 53.586 aðdáendur fylgdust með opnunarleik mótsins á fótboltavelli Fortuna Dusseldorf. Santiago Bernabéu er töluvert stærri völlur og tekur rúmlega 80.000 manns í sæti.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.