Stymmi spáir í spilin: 10. umferð Olísdeildar kvenna

Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna.

Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 10.umferð fari í Olís deild kvenna.

Valur – Stjarnan (Laugardagur 14:00)  /  Sigurvegari: Valur

Fyrsti leikur í deildinni eftir HM fríið. Valskonur á toppnum meðan Stjarnan situr á botni deildinnar. Þetta verður þægileg byrjun fyrir Val sem vinna leikinn örugglega.

ÍR– Fram (Laugardagur 14:30)  /  Sigurvegari: ÍR

ÍR komið liða mest á óvart í vetur meðan Fram eru að finna sitt fyrra form með góðum sigri á Haukum fyrir HM fríið. Hvernig koma landsliðskonur ÍR-inga til baka úr landsliðsverkefninu? Ég held ÍR haldi áfram að koma á óvart og vinni Fram.

Haukar – KA/Þór (Laugardagur 15:30)  /  Sigurvegari: Haukar

Sjónvarpsleikur umferðinnar á Ásvöllum. Haukar verið virkilega daprar í vetur og þær vita það. KA/Þór verið flottar í vetur og vilja eflaust hefna fyrir leikinn í fyrri umferðinni. Ég held Haukar mæti dýrvitlausar og vinni leikinn og tímabilið byrjar fyrir alvöru hjá þeim í dag.

Selfoss – ÍBV (Sunnudagur 13:30)  /  Sigurvegari: ÍBV

Suðurlandsslagur af bestu gerð. ÍBV á toppi deildinnar meðan Selfoss er í næst neðasta sæti deildinnar. Sandra Erlings komin aftur heim eftir gott mót með kvennalandsliðinu í Þýskalandi. ÍBV vinnur þennan leik þægilega og heldur áfram að vera á toppnum.

9.umferð (2 réttir)
8.umferð (4 réttir)
7.umferð (2 réttir)
6.umferð (3 réttir)
5.umferð (2 réttir)
4.umferð (4 réttir)
3.umferð (3 réttir)
2.umferð (2 réttir)
1.umferð (3 réttir)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top