Þorvaldur á leið til Póllands á reynslu
Baldur Þorgilsson

Þorvaldur Örn Þorvaldsson línumaður Vals í Olís-deild karla er á leið til Póllands á reynslu hjá pólsku úrvalsdeildarliði. Þetta staðfesti hann í samtali við Handkastið.

Þorvaldur fer út á næstu dögum og æfir hjá PGE Eybrzeże Gdańsk sem situr í 3.sæti pólsku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir á eftir stórliðunum í Wisla Plock og Kielce.

,,Ég verð hjá félaginu í nokkra daga en félagið er að leita af leikmanni fyrir næsta tímabil. Það er hinsvegar ekkert ákveðið með framhaldið. Mér líður vel í Val en langar að skoða þetta tækifæri,” sagði Þorvaldur í samtali við Handkastið.

Þorvaldur hefur spilað vel í vetur með toppliði Vals í Olís-deild karla og verið oftar en einu sinni í Cell-Tech liði umferðarinnar hér á Handkastinu. Þorvaldur sem er fæddur árið 2004 lék með yngri landsliðum Íslands og hefur fengið stærra hlutverk í liði Vals í vetur undir stjórn Ágústar Jóhannssonar, þjálfara ársins 2025.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top